Við elskum að föndra og gerum mikið af því. Hér langar mig til að deila með ykkur hugmynd að einföldu og skemmtilegu haustföndri. Ég gerði þetta með Emil og Ástrós í fyrra og eru myndirnar síðan þá, en við ætlum að gera þetta aftur fljótlega því Ástrós hefur svo oft talað um hversu gaman þetta var.
Það sem þarf:
Laufblöð af öllum stærðum og gerðum
Vatnslit
Pensla
Blöð
Byrjað er á að fara í gönguferð til að tína laufblöð og skemmtilegast að hafa þau sem fjölbreyttust. Þegar heim er komið eru þau lögð í bleyti og öll óhreinindi skoluð af, laufblöðin eru næst þerruð með eldhúspappír og þá eru þau klár.
Svo er bara að mála með vatnslitum á laufin og stimpla á blöð, það er hægt að leika sér endalaust með litasamsetningar og stimpla aftur og aftur.
Drífið ykkur út í haustið, náið í laublöð og prófið!
Ef þú prófar þetta með þínum börnum þætti mér ótrúlega vænt um ef þú myndir deila því með mér, með því að taka mynd og deila á Instagram með #infantiais, merkja myndina með @infantia.is eða einfaldlega senda mér skilaboð.