Mín á miðvikudegi

22/52 Fyrsta skólaárinu lokið

Alveg er það með ólíkindum hve fyrsta skólaárið leið hratt og trúi því varla að litla stelpan mín sé þegar búin með fyrsta bekk. Hún fékk frábæran vitnisburð eins og við var að búast enda hefur hún hefur staðið sig ótrúlega vel í allan vetur. Eftir formleg skólaslit í sal skólans var farið inn í stofu þar sem kennari barnanna veitti þeim öllum persónulega viðurkenningu og bókagjöf. Hún mun ekki vera umsjónarkennari þeirra næsta vetur þó hún muni vera eitthvað inni í bekknum. Það var ekki þurrt auga á neinni mömmunni þarna inni held ég þegar hún las upp viðurkenningarnar fyrir hvert og eitt barn og þakkaði þeim fyrir veturinn.

Ég á ekki einu sinni heiðurinn að þessari mynd heldur maðurinn minn, sjálf var ég svo upptekin við að þurrka á mér augun.