Ferming

Lovísa Kristín

Ég hef þekkt mömmu hennar frá því um það leyti sem ég fermdist, en þá byrjaði ég að passa eldri bróður hennar sem þá var 1 árs og hann býr btw í Ameríkunni núna þar sem hann nemur sálfræði í flottum háskóla og spilar fótbolta….hversu gömul er ég eiginlega orðin?? En allavega þá passaði ég hann þar til hann var 7 ára og ég fluttist erlendis, ég eyddi ófáum stundum inni á heimilinu þeirra og upplifði ýmislegt með þeim, en þetta var eins og mitt annað heimili. Eftir að ég fluttist erlendis kom þessi fallega stelpa í heiminn, Lovísa Kristín og þó ég hafi ekki kynnst henni neitt mjög mikið þá veit ég hversu frábær og dugleg hún er enda á hún ekki langt að sækja það. Hún er hörku dugleg í skóla og frábær dansari, en hún er einmitt í sama dansskóla og dóttir mín og hef ég því fylgst með henni í nokkur ár þar. Það var yndislegt að fá að mynda hana í vor í tilefni af fermingunni hennar.

Lovisa_Kristin001svhvLovisa_Kristin002Lovisa_Kristin005Lovisa_Kristin006Lovisa_Kristin007Lovisa_Kristin009Lovisa_Kristin011svhvLovisa_Kristin015