Börn

Hrefna Erla & Emelía

Það að fá að kynnast persónuleika barns, þó ekki nema í smá stund og festa á mynd er ótrúlega gefandi og skemmtilegt, en jafnvel enn skemmtilegra er að fá að mynda barnið aftur seinna. Að fá að fylgjast með því stækka og dafna og upplifa þá breytingu sem orðið hefur á barninu frá því í síðustu myndatöku er magnað.  Mér þykir alltaf ótrúlega  vænt um þegar sama fólkið kemur til mín aftur þegar barnið/börnin eru orðin eldri eða jafnvel fleiri börn hafa bæst í fjölskylduna og í þetta sinn var engin undantekning á því.

Ég myndaði Hrefnu Erlu fyrir þremur árum síðan, þegar hún var aðeins nokkurra mánaða líkt og litla systir hennar Emelía er núna.