• Börn

    3 dásamleg

    Yndisleg systkini sem komu til mín fyrir jólin í fyrra, en ég hef fengið þann heiður að mynda þau nokkrum sinnum áður, en var þó að hitta yngsta prinsinn í fyrsta sinn.

  • Börn

    Fjörkálfur

    Þessi pjakkur var heldur betur hress og kátur og í fullu fjöri þegar hann kíkti til mín í myndatöku fyrir síðustu jól. Það mátti alveg hlaupa mikið og keppast við að fá hann til að vera kyrran í smá stund, þvílíkur fjörkálfur sem hann er 🙂

  • Börn

    Yndis skottulína

    Þessi er heldur betur fjörug og frábær og kom með mömmu sinni snemma á þessu ári. Alltaf gaman að hitta börnin sem ég hef myndað áður og sjá hversu mikið þau hafa stækkað síðan síðast. Foreldrana langaði að eiga myndir af henni á svipuðum aldri og teknar voru myndir af stóur systur hennar og því kom hún ein að þessu sinni.

  • Börn

    Leiðarljós

    Fyrir nokkru síðan, eiginlega bara nokkuð löngu síðan var söfnun fyrir veikustu börn Íslands undir nafninu Á allra vörum. Þar söfnuðust fleiri milljónir sem ma. fóru í að opna stuðningsmiðstöð fyrir þessi börn og fjölskyldur þeirra. Ég reyndi að leggja málefninu lið og gaf myndatökur. Stuðningsmiðstöðin hlaut nafnið Leiðarljós og sá um að koma gjafabréfum til skjólstæðinga sinna. Sökum þess hve mikil vinna fór í að koma miðstöðinni á laggirnar var ekki farið að vinna í þessum málum fyrr en rétt fyrir síðustu jól og þá voru allir tíma fullir hjá mér. Þeim sem vildu var boðið að þiggja myndatöku í upphafi þessa árs og nokkrir nýttu sér tækifærið. Það…