Alexandra og Emilía
Rósa sem sá um makeupið fyrir mig í sveinsprófinu kom með stelpurnar sínar tvær í myndatöku í desember sl. Sú eldri var harð ákveðin í að láta ekki taka af sér myndir, það var ekki til umræðu af hennar hálfu og sú litla var nú heldur ekki sérlega spennt. En þolinmæði þrautir vinnur allar heyrði ég einhvern tímann……og viti menn það náðust nokkrar myndir af þessum fallegu stelpum. Kærar þakkir Rósa enn og aftur fyrir hjálpina í haust.
Bumba
Ungt og flott par og bumban þeirra, tekið á 36 viku
Katla María
Ótrúlega orkumikil og krúttleg stelpa hér á ferð, hún lét sko ekkert segja sér fyrir verkum…..vildi hafa þetta alveg eftir sínu höfði og það fékk hún
Júlía Rún
Lítil krúttapútta sem kom í myndatöku í desember
Emilía Dís
6 mánaða krúttsprengja sem kom í myndatöku fyrir jólin ásamt foreldrum sínum. Fullt af myndum…gat ekki valið úr