6/52 Sæla á sunnudegi
Ég var í stúdíóinu á sunnudegi að gera lita og lýsingar prufur fyrir komandi verkefni þegar Aron kom inn eftir að hafa verið út að leika, útitekinn og sæll, ég stóðst ekki freistinguna og smellti af honum einni mynd.
5/52 LEGO á laugardegi
Litli prinsinn minn í LEGO leik á laugardagsmorgni
4/52 Söknuður
3/52 gullfallega stelpan mín
Lá í sófanum og horfði á barnaefnið á meðan vindurinn og regnið út barði rúðurnar, ég sagði nafnið hennar og hún rétt gaf sér tíma til að líta af barnaefninu í sjónvarpinu og í myndavélina í eitt augnablik áður en augun límdust aftur á sjónvarpið.
2/52 Litla systir
Litla systir mín (hún er nú reyndar fullorðin, en er og verður alltaf litla systir mín) kom í heimsókn til okkar strax eftir áramótin og var hjá okkur í nokkra daga. Hún býr erlendis og hefur gert sl. 6ár, en við tvær höfum ekki búið í sama landinu sl. 12 ár fyrir utan nokkra mánuði þar sem við bjuggum báðar erlendis. Finnst það eiginlega alveg ómögulegt að hafa hana ekki nær mér en við tölum mikið og oft saman og það er alltaf jafn gaman að hitta hana þegar hún kemur. Varð auðvitað að fá mynd af henni með grísunum mínum tveimur áður en hún fór aftur heim.