Lítil perla
Það var á dásamlega fallegum haustdegi sem ég hitti þessa litlu fallegu fjölskyldu úti við til að taka fallegar haustmyndir af skottunni þeirra. Mamma hennar hafði verið sú heppna sem dregin var út í haustleiknum á Facebook. Mér fannst alveg tilvalið að mynda þau öll saman enda alltof sjaldan sem foreldrar eru með börnunum sínum á mynd, börnin yfirleitt sett í fókus í myndatökum. Það er svo dýrmætt að eiga fallegar myndir af fjölskyldunni saman, ástinni, nándinni, gleðinni og hamingjunni. Ég held að mér hafi tekist nokkuð vel til við að fanga þessi fallegu 3.
Flottir bræður
Þessi tveir voru heldur betur hressir þegar við hittumst úti á stórkostlegum sunnudegi í haust. Þeir hlupu um, hlógu og skríktu, hoppuðu og skoppuðu og sprengdu mig í tætlur með reyniberja “sprengjum”. Gleðin var allsráðandi þessa stund.
Hress og falleg fjölskylda
Gaman að fá svona fallegt fólk í stúdíóið til mín. Mömmuna langaði í fallegar myndir af sér með börnunum og svo einstaklings myndir líka. Móna hundurinn þeirra fékk að fyljga með enda stór hluti af þeirra fjölskyldu.
Sætar systur
Þessar súper sætu systur komu í myndatöku fyrir síðustu jól og það var mikið stuð í stúdíóinu því þarna voru fjörkálfar á ferð.
Alexander, Gunnar og Logi