• Ýmislegt

    Vinavika – Sandra

    Sandra og Aðalbjörg eru systur og algjörar smalokur þannig að um leið og vinátta myndaðist við Aðalbjörgu urðum við Sandra vinkonur. Hún bjó líka í sama húsi og við og við gengum með börnin okkar á sama tíma, vorum meira að segja settar sama dag. En börnin okkar fæddust nú samt á sitthvoru árinu, þó eru bara þrír dagar á milli þeirra. En samveran var mikil í fæðingarorlofinu og samgangurinn er enn mikill og börnin okkar góðir vinir. Sandra er eins og systir sín boðin og búin til að gera allt og hún hefur reddað mér þegar ég hef verið að mynda úti í bæ og kippt börnunum heim fyrir…

  • Ýmislegt

    Vinavika – Aðalbjörg

    Þegar við fluttum í Vogana fyrir 5 árum þekktum við engan þar, ekki hræðu. Við fluttum í lítið fjölbýlishús og í íbúðinni við hliðina á bjó stelpa á mínum aldri sem átti lítinn strák á aldur við Dagbjörtu.  Dag einn spjölluðum við aðeins saman og uppfrá því spratt góð vinátta. Það fór að vera töluverður samgangur á milli okkar Aðalbjargar og börnin okkar léku sér oft og mikið saman. Eftir að hafa búið þarna í rúm tvö ár vorum við Diddó farin að líta í kringum okkur eftir húsi, og fundum raðhús þarna í bænum sem okkur leist vel á, þau voru tvö til sölu, hlið við hlið. Það fór…

  • Ýmislegt

    Vinavika – Hanna vinkona

    Við Hanna kynntumst í leikskóla, lékum okkur saman þar og vorum í pössun á sama stað fyrir hádegi áður en við fórum í leikskólann (þá voru börn annaðhvort fyrir eða eftir hádegi í leikskóla en ekki allan daginn eins og núna). Ég á enn ýmsar góðar minningar frá þessum tíma þegar við vorum 4-5 ára og við höfum verið vinkonur síðan. Við vorum saman í 1. bekk og eitthvað uppúr, en Hanna flutti út á land með foreldrum sínum í nokkur ár, við heimsóttum hvora aðra af og til og svo loksins kom hún aftur í Hafnarfjörðinn og aftur í skólann okkar. Sumarið eftir fermingu fórum við tvær saman til…

  • Ýmislegt

    Vinavika – besti vinurinn

    Hann hefur verið besti vinur minn í 16 ár og  ekki nóg með það þá er hann líka maðurinn minn(ókei unnustinn minn, við erum víst ekki enn gift). Við kynntumst á 16 ára afmælisdaginn minn og fórum að vera saman nokkrum dögum síðar og höfum verið saman síðan þá. Í febrúar sl. voru liðin 16 ár frá því við byrjuðum saman og það þýðir að ég hef átt helminginn af ævi minni með honum. Hann hefur staðið með mér í gegnum súrt og sætt, stutt mig og hvatt mig áfram. Ég er honum óendanlega þakklát fyrir allan þann tíma sem við höfum átt saman og veit það fyrir víst að…

  • Ýmislegt

    Vinavika – Besta vinkonan

    Það er vinavika í skólanum hjá  dóttur minni og það fékk mig til að hugsa um hversu góða vini ég á. Næsta vika mun vera vinavika hér á blogginu og póstar því á persónlegum nótum. Hefur þú einhvern tímann velt fyrir þér hver þú værir eða hvar þú værir í lífinu án vina þinna? Ég veit fyrir víst að ég væri ekki sú sem ég er eða á þeim stað í lífinu sem ég er án minna vina. María besta besta vinkona mín fær heiðurinn af fyrsta póstinum enda á hún afmæli í dag (til hamingju með daginn þinn). Hún hefur verið besta vinkona mín frá því í 1.bekk og við…